Það er búið að vera mikið um pólitík hér á þessari síðu
undanfarið, og nú er tími til komin að slá aðeins á léttari
strengi. Hér er smávegis af fánýtum fróðleik, sem er til þess
fallin að létta brúnina á þeim sem lesa, en samt er þetta
allt dagsatt!!!
Í Ástralíu er bannað að stunda kynlíf með kengúrum auk þess sem
bannað er að eiga rúm á ákveðnum stöðum án tilskilinna leyfa.
Almennir borgarar mega heldur ekki skipta um ljósaperur. Löggiltir
rafvirkjar mega einir gera slíkt. Það fáránlegasta af þessu öllu
saman er kannski það að í bænum Victoria er bannað að vera í
bleikum stuttbuxum eftir hádegi á sunnudögum.
Í bænum Santa Cruz í Bólivíu er bannað að stunda kynlíf með
móður og dóttur á sama tíma. (ojojojojojojojojoj) Kanadabúum er
bannað að stíga um borð í flugvél eftir að hún er farin á loft. Það
er líka ólöglegt að fjarlægja plástur og önnur sárabindi
opinberlega. Í bæ einum segja lögin enn fremur til um að þegar
fangi losnar úr fangelsi skal honum afhent hlaðin byssa ásamt hesti
svo hann geti riðið út úr bænum sem fyrst.
Íbúum Calgary er bannað að kasta snjóboltum án þess að hafa
sérstakt leyfi frá bæjarstjóra og í Nova Scotia er bannað að vökva
garða þegar það rignir. Þar er jafnframt bannað að prumpa á meðan
maður reykir en í bænum Oxbridge er bannað að hafa internettengingu
sem er öflugri en 56k.
Í Kólumbíska bænum Cali mega konur aðeins stunda kynlíf með
eiginmanni sínum og þegar það gerist í fyrsta skipti skal móðir
konunnar vera viðstödd. Enskum konum er bannað að borða súkkulaði í
almenningssamgöngutækjum, s.s. lestum og strætisvögnum. Það er líka
bannað að borða bökur á jóladag og svo mega eiginmenn alls ekki
lemja konur sínar eftir kl. 21 á kvöldin.
Í Frakklandi er bannað að kyssast á járnbrautastöðvum og
þarlendir svínabændur mega ekki undir neinum kringumstæðum kalla
svínið sitt Napóleon. Í Indónesíu liggur dauðarefsing við
sjálfsfróun.
Ítalskir karlmenn mega ekki ganga um í kjólum. Ef þeir gera það
eiga þeir á hættu að verða handteknir. Það er líka bannað að blóta
opinberlega og í vissum héröðum mega konur sem heita María ekki
stunda vændi.
Í Líbanon mega menn stunda kynlíf með dýrum svo framarlega sem
dýrið er kvenkyns. Ef það er karlkyns liggur dauðarefsing við
brotinu.
Í Sádí-Arabíu mega karlkyns læknar ekki meðhöndla konur. Lögin
segja jafnframt að konur megi ekki gerast læknar. (þetta er
náttúrulega fulkomnlega rökrétt hugsun)
Í Sviss mega menn ekki pissa standandi eftir kl. 22 og heldur
ekki hengja upp þvott utandyra, þvo bíla eða slá gras á sunnudögum.
Þá liggja sektir við því að gleyma lyklum í ólæstum bílum.
Í Singapore eru munnmök með öllu ólögleg auk þess sem
samkynhneigð er alls ekki leyfð. Ennfremur er allt klám bannað og
fólk má ekki ganga um nakið heima hjá sér þar sem það er talið til
kláms.
Í Skotlandi segja lögin að ef einhver bankar upp á og biður um
að fá að nota klósett þá skal hann fá að gera það ella hljóti
húsráðandi sektir.
Í Tælandi er ólöglegt að fara út úr húsi án þess að vera í
nærfötum.
Í Alabama er bannað að keyra með bundið fyrir augun og það má
heldur ekki sigla bátum á götunum. Það furðulegasta er samt að fólk
má ekki vera með vöffluís í rassvasanum!
Íbúum Alaska er mjög umhugað um elgina sína og þar af leiðandi
stendur það í lögum að ekki megi láta þá hanga úr flugvél. Það má
heldur ekki henda þeim út úr flugvélum eða gefa þeim áfengi.
Asnar mega ekki sofa í baðkörum í Arizona og þar að auki er
ólöglegt að hafa fleiri en tvö kynlífshjálpartæki á einu og sama
heimilinu.
Í Maricoba County mega svo ekki fleiri en 6 stúlkur búa í sama
húsinu.
Í Arkansas eru munnmök bönnuð og ekki má geyma krókódíla í
baðkörum. Þar að auki er ólöglegt að bera nafn ríkisins vitlaust
fram. Til að setja upp músagildrur þurfa menn að hafa veiðileyfi í
Kaliforníu. Þar hafa páfuglar líka forgang í umferðinni, nema þeir
séu á vappi í innkeyrslum fólks. Í Baldwin Park er bannað að hjóla
í sundfötum og sums staðar verða menn að eiga minnst tvær kýr ef
þeir ætla að ganga um í kúrekastígvélum. Þá liggur allt að 500$
sekt við því að nota kjarnorkuvopn innan bæjarmarka Chico og í Los
Angeles er bannað að þvo tvö ungbörn í sama baðkarinu. Einnig er
bannað að eiga flóðhesta en ef menn ætla út að labba með fílinn
sinn verður hann að vera í bandi. Að lokum er bannað að þvo bílinn
sinn með nærfötum.
Floridabúar mega ekki stunda kynlíf með broddgöltum og alls ekki
reka við opinberlega eftir kl. 18 á kvöldin. Þá mega ógiftar konur
ekki stunda fallhlífarstökk á sunnudögum og það er bannað að fara í
sturtu nakinn. Eiginmenn mega heldur ekki kyssa brjóst konu sinnar
og þar er líka bannað að syngja á meðan maður er í sundfötum.
Lögreglumenn í connecticut hafa leyfi til að stpðva
hjólreiðamenn ef þeir fara yfir 100 km hraða og í bænum Devon er
bannað að labba aftur á bak eftir myrkur. Þegar fólk fer í messu á
sunnudögum í Georgiu skal bera hlaðinn rifill á sér og allir íbúar
þar skulu minnst eiga eina grashrífu á mann. Þar má heldur ekki
binda gíraffann sinn við ljósastaur.
Í bænum Marietta var bannað að hrækja út úr fólksbílum og strætó
en það má hrækja ef maður er á vörubíl. Enn eru lög í gildi í
Illinois sem banna fólki að tala ensku og þar liggja líka sektir
við að pissa upp í munn nágranna síns.
Chicagobúar hafa heldur ekki leyfi til að veiða í náttfötunum
eða gefa hundinum sínum viskí. Hins vegar má fólk undir 17 ára
aldri mótmæla nakið fyrir framan ráðhúsið, svo framarlega sem það
hefur leyfi foreldra sinna, og dýr geta fengið fangelsisvist eins
og fólk. T.d. var api dæmdur í 5 daga fangelsi fyrir
búðarhnupl.
Í bænum Oblong er svo stranglega bannað að stunda kynlíf á meðan
maður er að veiða á brúðkaupsdaginn sinn og þar eru skrímsli heldur
ekki leyfð innan bæjarmarkanna.
Talan Pí er venjulega um 3,14 nema í Indianaríki þar sem hún er
skv. lögum 4. Þar er öpum líka bannað að reykja og svörtum köttum
er skylt að vera með klukku um hálsinn ef það er föstudagurinn
13.
Í Lowa mega kossar ekki vara lengur en 5 mínútur í senn og
einhentir píanóleikarar mega ekki krefjast greiðslu fyrir vinnu
sína. Jafnframt er slökkviliðsmönnum skylt að æfa sig í minnst 15
mínútur áður en þeir leggja af stað í brunaútkall og að auki mega
hestar ekki borða brunahana.
Hænsnaþjþofar mega ekki stunda ,,vinnu" sína á nóttunni í Kansas
en þar er líka bannað að veiða fisk með berum höndum.
Lög í Kentucky segja að maður teljist edrú uns hann stendur ekki
lengur í lappirnar og þar er líka skylda að fara í bað einu sinni á
ári. Konur mega heldur ekki kaupa hatta án samþykkis eiginmanns
síns og ólöglegt er að þiggja endaþarmssamfarir. Þar má heldur ekki
binda krókódíla við brunahana.
Í Massachusetts er bannað að borða meira en 3 samlokur í
jarðarför og ljón mega ekki fara með eigendum sínum í bíó. Górillur
mega heldur ekki sitja í aftursæti bíla.